BEST OF THE BEST II
20.11.2006 09:43:34 / Hreidar2

Súrrealískt

          Jæja, oft hefur mér nú dreymt súrrealíska drauma en þessi toppar allt. Þessi er mesta rugl sem ég hef nokkurn tíman tekist að dreyma. Shit hvað ég var feginn að vakna.

          Allavega þá hljóðar hann einhvern veginn svona: Ég var staddur í einhverri gleði í Reykjavík og verð svona súrrandi, bullandi fullur að ég veit ekkert í heiminum, allt voðalega gaman í veislunni samt sem áður. (Jæja nú hefst ruglið) Eftir veisluna ákveð ég að fara til Mosfelsbæjar (ekki gleyma, alveg á kálfa-sneplonum) til þess að ná mér í varahluti fyrir Hyundai (whhhhaaaaaaaaaat), virðist hafa ráfað alla þessa leið því næst þegar ég veit þá er ég kominn heim til Fjölnis Tattoos. Ég spjalla örstutt við hann áður en ég ákveð að láta hann tattoovera mig aðeins. Man eftir að hafa beðið hann um að setja frekar stóran Krusty the Clown sem átti að ná frá miðju vinstra læri og upp á miðjan maga (og viti menn that looks amazing, uuuuuuuuuu nei), heyrðu, svo man ég að minns rétti honum mynd af Nicolaj Jancovich (hægri hornamaðurinn okkar í Akureyri) og bað hann um að tattoovera hann aftan á hnakkann á mér. Fjölnir (my bro, a-ha) byrjar á þessu og í þeim töluðu rotast minns væntanlega því næst þegar ég vakna þá ligg ég á golfinu inn á lager á einhverri matvörubúð, rámar eitthvað í Fjölnir Tattoo og byrja að klóra mér í vinstra lærinu og maganum. Kíkji svo á þau ber og við blasir þetta flenni stóra listaverk af Krusty the Clown (og minns bara „foooookkkkk“), svo byrjar mér að klæja í handarbakinu á vinstri hönd og sé þar tattooverað andlitið á Homer og það yfir allt handarbakið (og minns aftur foooookkkkk). Minns hristir eitthvað hausinn, sér að Homerinn er eitthvað upphleyptur og þá ákveður minns að gá hvort hann geti ekki kroppað þetta bara af (til að spara og sleppa við að fara í tattoo fjarlægingu, það eru nú að koma jól). Minns byrjar að kroppa og nær að opna þetta aðeins en þá fara allt í einu að birtast eitthvað gums og grænar ólífur (já, þær voru með ansjósum, ef einhver var að velta því fyrir sér) undir handarbakinu. Minns verður náttúrulega skelkaður við að sjá þetta gums undir handarbakinu á sér, en heldur þó áfram að kroppa. Svo þegar minns er við það að ná allri myndinni af þá lekur allt heila klapsið af, og eftir stendur minns með tóma vinstri hendi fjögur handarbein og fjögur lítil handar kjötstykki (huh). Var að átta mig á í þessum töluðu að þumalputtinn hefur greinilega sloppið, minns var nú samt ekkert að dansa rigningadans yfir því neitt að svo stöddu, en jæja áfram með drauminn. Minns er náttúrulega mjög skelkaður eftir þetta, en þá birtist einn gamall félagi, hann Binni (gamall hornamaður úr yngri flokkum KR) sem vann í þessari matvörubúð. Minns biður hann um að hringja á sjúkrabíl fyrir mig sem og hann gerir. Sjúkrabíllinn kemur, tekur mig upp í eins og ég hafi verið að húkka mér far með þeim, var eitthvað skrítið því sjúkraflutningamennirnir höfðu nú ekki miklar áhyggjur af mínum. Þeir aka mér svo ekki á spítala heldur droppa þeir mínum út á Kentucky í Mosó. Þegar minns stendur fyrir utan Kentucky ákveður minns nú aðeins að heyra í Tinnu sinni, rabbar aðeins við hana áður en minns lendir í láréttri slydduskryðu (huh), missir síman og á í miklum vandræðum með að koma sér út úr henni en tekst það þó að lokum og fell niður til jarðar fyrir framan einhverja sjoppu, (já, lárétta slydduskriðan gekk semsagt í lausu lofti, makes sense, ehh) tek símann upp aftur og fer aftur að spjalla við Tinnu sína og tekur eftir því að höndin er orðin „eðlileg“ aftur, bara með punkta strikuðum Homer á henni (It´s a miricle).

          Svo er minns allt í einu kominn heim (hvar svo sem það var) og sér til skelfingar sér minn að allt helvítis Akureyrar liðið er statt á svæðinu. En jæja, minn skellir sér á rörið til þess að skoða aðeins betur þessi tattoo sem hann hafði fengið sér í gær nótt. Fyrst birtist Krusty-inn, sem var alveg skelfilega ljótt, svo var minns allt í einu kominn með flenni stórt tattoo af einhverjum þrem hörðum, krimma útlítandi Latínó gæjum með byssur (Þessir þarna snoðuðu í hvítu hlýrabolonum) yfir allann hægri brjóstkassann á mér (minns enn og aftur foooookkkkk), svo var þarna eitthvað fugla tattoo þar sem að búið var að sauma alvöru fuglsvæng í tattooið, svo hann stóð aðeins út (nú var minns bara foooookkkkk). Jæja, nú var minns orðin frekar súr yfir að hafa eiðilagt sig svona og er að fara ganga út úr baðherberginu þegar minns sér glitta í frekar stórar umbúðir yfir hankkanum á sér (foooookkkkk). Minns rífur umbúðirnar af og við blasir master písið, útúr pimpaður Janckovic með gítar í hönd inn í stúdíói, allur leður klæddur og með rettuna hangandi niður úr munnvikinu. Við det samme vaknaði ÉG.

Ein lexía lærð, ekki fá ykkur tattoo hjá Fjölni!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

HLG


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.10.2006 00:36:30 / Hreidar2

Speki

          Engann langar að þjást, samt leita allir að þjáningu, því það að fá að fórna sér og finna þannig réttlætingu, halda sig vera hreina, eiga skilið virðingu barna sinna, eiginmanna/kvenna, nágranna, Guðs.

          Það sem stjórnar heiminum er ekki leitin að unaði heldur hitt, að afneita öllu sem er mikilsvert. Fer hermaðurinn í stríð til að drepa óvininn? Nei. Hann fer til að deyja fyrir þjóð sína. Langar konuna að sýna manninum hvað hún er ánægð? Nei. Hana langar að hann sjái hvernig hún fórnar sér, hvað hún þjáist mikið, svo hann verði ánægður. Fer eiginmaðurinn í vinnuna af því að hann heldur að hann finni sig í henni? Nei. Hann svitnar og grætur til að framfleyta fjölskyldunni. Allt er eftir þessu: Börn segja skilið við drauma sína til að geðjast foreldrunum, foreldrarnir neita sér um að lifa til þess að gleðja börnin. Þetta er sársauki og þjáning til að réttlæta ást sem hefði aðeins átt að veita unað.

Mál er að fæðast, mál að deyja

mál er að sá, mál að uppskera

mál er að deyða, mál að lækna

mál er að rústa, mál að byggja

mál er að gráta, mál að hlæja

mál er að syrgja, mál að dansa

mál er að grýta, safna grjóti

mál er að faðma, mál að kveðja

mál er að finna, mál að týna

mál er að geyma, mál að sóa

mál er að rífa, mál að rimpa

mál er að þegja, mál að tala

mál er að elska, mál að hata

mál er að berjast, mál að sættast

          Ætla nú ekki að púlla Hannes Hólmstein á þetta og þykjast eiga þessa speki sjálfur þótt ég hafi aðeins cut-að úr þessu (Ekki mikið þó). Þessi magnaða speki sem mér finnst ansi merkileg og djöfulli sönn er úr bókinni Ellefu mínútur eftir hinn stórfenglega rithöfund Paulo Coelho. 

 

                                                               HLG


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.10.2006 20:00:51 / Hreidar2

Örugglega kannski!!!!!!!!!

Jæja börnin mín, nú er aldeilis langt síðan ég skrifaði á þessa síðu, tja eða bara skrifaði eitthvað yfir höfuð. Nú á að fara að bæta úr þessu, frá og með deginum í dag.

Þessi færsla verður svona samtíningur á því hvað mér finnst vera heppni, skrítið og jafnvel bara út úr landakortinu.

 

  • Af hverju er engi eitthvað samansem merki um hamingju og gleði, næ því ekki alveg. Kannski brenglað skyn mitt á hamingjunni, kapítalisminn sennilega búinn að brengla mig, væri mun hamingjusamari með fjarstýringu í hönd fyrir framan 50” plasma tækið mitt sleikjandi Sunlolly.  Burt séð frá brenglun minni, þá common, snúa sér í hringi á engi eins enginn sé morgundagurinn ví-hú og jíbbí jei. Sálfræðingar dagsins í dag ekki alveg að fatta. Staðin fyrir að spjalla við fýlupúka á einhverri veggfóðraðri stofu og henda Xanax töflum í kokið á þeim væri ekki mun einfaldara að henda fýlupúkunum út á eitthvað stórt engi og láta þá dansa þar í 30 mín, 3x í viku, verst hvað það væri slæmt fyrir Actavis!!!!!!!!!!!!

 

* Var sakaður um það um daginn að vera með brenglað skyn á hvað væri heppni, mótmæli því harðlega en get þó játað að ég geri kannski ekki eins miklar kröfur og flestir út í það hvað ég tel vera heppni. Nokkur dæmi hér fyrir neðan.

 

* Fokk shit, hvað ég er oft búinn að vera heppinn að komast lifandi út úr flugvél.

Síðast bara í gær, fokk shit, flugvélin djassaði í korter (án þess að fá sér svo mikið sem einn te sopa á milli). Ég var þó þvílíkt hugrakkur og nr. 1,2 og 3 sem ég hugsaði um var að halda cool-inu, well no, ekki satt. Var ekkert eðlilega stressaður fyrir flugið og sást það greinilega, því flugbeyglan sem var þarna spurði mig hvort ekki væri allt í lagi hjá mér (tekið skal fram að vélin var ekki tekin í loft og ég með spenntar greipar, lokuð augun, ruggandi mér fram og aftur og talandi tungum). Ég svaraði: “ha, jú-jú, ég er góður” (einmitt). Svo hélst ég  nokkuð góður þar til seinasta korterið kom og úff, ég hreinlega skalf af hugrekki. Nokkur óp, úff, shit, ertu ekki að grínast og Jesús minn hoppuðu út úr munninum mínum óumbeðinn. Hefði sennilega komið út úr skápnum hefði ég bara verið *ommi. En fjúkket, heppnin fylgdi mér og þeim sem með mér voru í vélinni og lentum við heil og höldnu á flugbrautina á Vatnsmýrinni. Heppinn.

 

* Þegar maður fer að kúka og það kemur ekkert skein. Verð alltaf alveg óhemju glaður og tel þetta vera mikla heppni því þetta gerist alltof sjaldan. Rakst svo á þessa síðu sem kennir manni hvernig maður á að hafa svona hægðir á netinu, allt er nú til. Slóðin er www.nowhiping.com

 

  • Það kom sól á Akureyri í ágúst J Heppni
  • Það kom enginn snjór á Akureyri í ágúst J Heppni

 

Fór í klippingu í dag, kostaði 5000 og 200 kr. Óheppni

 

                                                                                                                                  HLG                                       

 

      Hvað teljið þið gott fólk vera heppni???????????

 

 

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.08.2006 19:58:12 / Hreidar2

DON´T LOOK AT ME IN THAT TONE OF VOICE

"And if you can't be with the one you love, honey Love the one you're with."

CS&N

"I do my thing, and you do your thing. I am not in this world to live up to your expectations, and you are not in this world to live up to mine. You are you, and I am I, and if by chance we find each other, it's beautiful."

Frederick E. Perl

"We've got this gift of love, but love is like a precious plant. You can't just accept it and leave it in the cupboard or just think it's going to get on by itself. You've got to keep on watering it. You've got to really look after it and nurture it. "

John Lennon

"Darkness cannot drive out darkness; only light can do that. Hate cannot drive out hate; only love can do that."

Martin Luther King, Jr.

"love is the flower you've

got to let grow"

John Lennon


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.08.2006 21:56:59 / Hreidar2

Blogg í tilefni versló!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

               Susss ekkert eðlilega fínt veður í dag og vona ég svo innilega að þetta haldist yfir verslunarmannahelgina þar sem Gleðin, ástin og hamingjan (öllu troðið inn í ½ lítra dósir) mun ráða ríkjum og eiðileggja öll þessi yndislegu og frábærlega skemmtilegu útihlaup (Maður þraukar út handbolta tímabilið svo maður  verði nú ekki settur út úr hópnum rétt áður en útihlaupin hefjast) sem hafa dunið á okkur undanfarið. Svo til að toppa hamingju hjartans þá er ræs eitthvað fyrir kex því mæting er á Akureyrarvöll kl. Kex:15 og sennilegast verða hlaupin 3 “(Michael) Cooper” test sem er Beautiful, fallegt, Delle Alpi, schöne, vackert eða bara hvað sem þið vilja (Dorritos, einhver???). Við þurfum semsagt að hlaupa litla 9.000.000 sentímetra í morgun ó-ó-ið, þar sem hvert “(Michael) Cooper” test inniheldur litla 3.000.000 sentímetra. Já hið nýja lið Akureyri stefnum hátt í liðakeppninni í Reykjavíkur maraþoninu. Haldinn verður svo fundur næstkomandi þriðjudag þar sem horft verður á gleðigjafa auglýsingarnar þar sem okkur er gefinn tími til að æfa hlaupastílinn, fagnið og eitthvað annað sem mér gæti ekki verið meira sama hvað er. Svo í lok fundar verður tilkynntur 14 manna hópur sem mun taka þátt. Þar verður mikið fagnað hjá þeim 14 sem komast í hóp en hinsvegar mun táraflóðið og brostin hjörtu verða meira áberandi hjá hinum 36 sem ekki meika það enda með eindæmum viðkvæmar sálir við Akureyri HF menn. Konur, eiginmaður, tja og mæður leikmanna mega vera á tánum þetta þriðjudags kvöld til að hughreysta þá er koma heim með vonbrigði jarðar á herðum sér.

 

               Einu sinni var strákur er Kiddi hét og hafði hann náð þeim merka áfanga að braut skrifast sem bygginga kall. Hann bauð því til veislu er haldin yrði heima hjá honum. Við kættumst mjög fyrir hans hönd en þó aðalega vegna veislunnar þar sem vænta mátti veitinga og hin gullni drykkur myndi flæða, skýjaður haus er skemmtilegur innan um skýjaða vina hausa og því var eftirvæntingin mikil en eitt var þó að trufla okkur félagana, það var hvað við áttum að gefa félaganum. Ekkert gerðist og tómir hausar ráfuðu um öngstræti og gangbrautir en ekkert gerðist þangað til gáfumennið og bindindismaðurinn hann Hreiðar Levý Guðmundsson (gaman að tala svona um sjálfan sig í þriðju persónu........ og já það er engin kaldhæðni í þessu eftir til-ið og heldur ekki í þessum sviga) fékk eitt stykki Osram ljósaperu fyrir ofan hausinn hægra meginn sem kviknaði á (Er reyndar nánast alltaf kveikt á henni, ekki heldur kaldhæðni). Hreiðar bar hugmyndina undir/yfir þá Popeye og I. Beckham og leyst þeim vel á og mikið meira mest hlegið bara við tilhugsunina um það ef þetta myndi heppnast og Kiddi falla í netið.Svo hófst undirbúningurinn, sem var reyndar andstyggilega auðveldur fyrir jafn magnaðan hrekk. Popeye og I. Beckham komu heim til Hreiðars sem átti tóman prótein dúnk sem á stóð chokolate og í hann var fyllt Néstle kakómalt í staðin fyrir próteinið. Semsagt mánaðarskammtur af kanínu kakói beint í æð eftir lyftingaæfingar. Kiddinn tók þessari gjöf með mikilli hamingju í hjarta og talaði allt kvöldið um  það að nú skildi sko taka á því í lyftingonum, refsa járnunum. Tók hann Stulla inn í herbergið sitt til þess að fá ráðleggingar hvernig hann ætti að bera sig af með próteinið. Stulli vissi auðvitað um ráðhaginn eins og allir aðrir í veislunni nema Kiddinn.

             

               Svo nokkrum dögum seinna þá er haldið til æfinga í veggsport þar sem Kiddinn refsar lóðunum óhóflega, nú átti sko aldeilis að taka á því svo próteinið mundi nú kikka extra inn. Svoleiðis líður æfingin og mikil tilhlökkun í okkur peyjunum hvort hann myndi falla fyrir hrekknum. Svo kom nú aldeilis á daginn því um leið og við komum inn í klefa skundar Kiddinn í átt að töskunni sinn og rífur upp prótein dúnkinn, nokkrir héldu andlitinu en aðrir þurftu að taka á rás út úr klefanum til að missa sig í smá spassa og ekki klúðra þannig hrekknum í hríðunum (fæðingu). Jæja, hann nær í brúsann sinn og smyglar einni mæliskeið af því að hann heldur súkkulaði próteini í hann og blandar því í íshraun kalt vatn, hristir svo sómasamlega til þess að þetta mixist nú almennilega saman og hendir svo góðum slurk í andlitið á sér. Hristir svo hausinn og hefur á orði hversu ógeðslega vont þetta sé en hann skuli nú láta sig hafa það, allt fyrir aukið þvermál bibbans,sundlaugarvöðvans eða bicepsins, hvað sem þú vilja. Svona gengur þetta í langan tíma og Kiddinn alltaf að tala um hvað próteinið sé að virka vel og hversu sómasamlega hann sé búinn að vera við að innbirgða próteinið tvisvar á dag (morgnanna og eftir lyftinga æfingar. Ósjaldan sló hann einnig á bibbana sína og talaði um hvað þetta væri allt að koma hjá sér. Hafði einnig á orði hversu hrikalega kögglaður hann myndi nú vera þegar JJ (Júlíus Jónason, þjálfari okkar á þeim tíma)kæmi til baka úr fríi. Þetta spurðist náttúrulega líka út um allt, í öll önnur félagslið þar sem leikmenn og aðrar hetjur rúlluðu eftir gólfinu af hlátri en aldrei grunaði Kiddann neitt. Fór meira að segja svo langt að þetta spurðist út í einni afmælisveislu sem hann ásamt fleiri ÍR-ingum voru  viðstaddir, mikið bent og hvíslast og Kiddinn ávalt kallaður prótein gaurinn án hans vitundar (mátti náttúrulega ekki klúðra hrekknum sem þarna var búinn að standa yfir í rúmar tvær vikur).

             

               Svo kemur JJ heim og tekur yfir þjálfunina aftur og kemur að Hreiðari og segir að sér fyndist Þetta fáránlega fyndið, en nú sé þetta búið að standa yfir í tæpar 4 vikur og aldeilis farið að þynnast í prótein dúnknum. Hreiðar og I.Beckham skildum nú fara segja honum frá þessu, við samþykktum að gera það eftir nokkra daga. Á þessum loka spretti kom að Hreiðari og fleirum finnst besta kommentið frá Kiddanum. Hann var þarna að vinna með Stulla í smíðavinnu og sótti Stulli hann iðulega í vinnuna. Stulli var einnig mjög duglegur við það að segja okkur frá hinum ýmsu kommentum frá Kiddanum í sambandi við prótein ævintýri hans, sem Kiddinn var mjög upptekinn af á þessum tíma. Þannig er allavega mál með vexti að Kiddinn kemur nokkuð spenntur inn í bílinn hans Stulla um morgunninn þar sem þeir eru að fara skella sér í vinnuna og slær svona þétting fast í öxlina á Stulla með glampa í augunum eins og hann hafi gert einhverja stórmerkilega upphvötun og fer að dásama hversu gott þetta prótein sé þegar það er blandað út í mjólk eða eins og Kiddinn sagði “Ertu ekki að grínast hvað próteinið er gott út í mjólk”. Stulli segir okkur ÍR félögunum frá þessu og missum við okkur náttúrulega úr hlátri og komumst einnig að þeirri niðurstöðu að nú sé tímabært að fara segja honum frá þessu, enda búinn að vera drekka Kanínu kakó í vatn í tæpan mánuð (dúnkurinn var mánaðar skammtur).

             

               Skundað var á æfingu þar sem Hreiðar hafði þann mikla hausverk að þurfa að tilkynna Kiddanum hrekkinn. Ákveðið var að hóa öllum liðsfélögunum saman í annan helminginn í klefanum í Austurbergi meðan Kiddinn færi í sturtu. Það var gert og Kiddinn fór í sturtu, allir settust niður nema Hreiðar sem stóð álengdar með nettan hnút í maganum sínum fyrir því að þurfa að upplýsa Kiddan um það að hann hafi í raun verið að fylla bibbana sína af kanínu kakói alla daga en ekki próteini í rétt tæpan mánuð. Kiddinn stígur út úr sturtunni og sér allt liðið saman komið sitjandi öðrum megin í klefanum og Hreiðar standandi í miðjunni. Hreiðar tók svo til orða og sagði “Hérna í sambandi við próteinið sem þú hefur verið að taka” og í sömu andrá missti Kiddinn andlitið og fattaði að um hrekk væri að ræða. Kiddinn rauk í hinn helminginn af klefanum og klæddi sig í fötin á innan við 10 sek og rauk út í fússi. Hreiðar náði rétt svo að æla út úr sér “þetta var semsagt ekki prótein heldur Néstle kakómalt” meðan hann sá á eftir hnakkanum á Kiddanum.

             

               Allt blessaðist þó og rann af honum reiðin strax daginn eftir og eru Kiddi Kakó eins og hann er oft kallaður eftir þetta og Hreiðar enn bestu vinir og lyfðu hamingjusamir til æviloka (ekki þó saman). Hreiðar hefur svo sem einnig fengið þetta í hausinn í formi annarra hrekkja sem hafa þótt nokkuð skemmtilegir.

 

                                          Hreiðar Mutola kveður að sinni     

 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.06.2006 02:15:26 / Hreidar2

Grátur

Óli-óli-óli-óli-------óli-óli (Alþjóðlegt) Svo líka Jíbbí jei-jibbí-jibbí-jei (Rokklingarnir) og að lokum dudd-du-du-duddu-duddu-du-duddu-du-duddu-du-duddu-dudd-u-du (Scooter) Svíarnir lagðir Later hreiðar LEVÝ guðmundsson

» 7 hafa sagt sína skoðun

30.05.2006 17:24:15 / Hreidar2

The time is not by my side

              Til að byrja með ætla ég að blóta tímanum. Frá og með seinnipart föstudags hefur hann ákveðið að hægja all ískyggilega á sér svo það hálfa væri þó nokkuð miklu meira en nóg. Svo drullaðu þér að fara að ganga eðlilega aftur og smá nitro væri vel þegið annað slagið.

               Hef verið að æfa í borginni með landsliðinu undanfarna rúma viku, það hefur verið fínt nema hvað við erum ekkert að deyja úr fjölmenni á æfingum, það komast allavega alveg fleiri fyrir í salnum í Austurberginu. Við kepperarnir erum 1/3 af hópnum á æfingum sem að er ekki alveg nógu gott og takmarkast æfingarnar svolítið út af því. En Alli er þó að gera góða hluti og er með fínar æfingar. Útlendingarnir koma svo þann 4. júní og hefjast æfingar með þeim þann 5. og svo skellur strax á leikur á móti Dönum á AK þann 6. júní (Sem ég var mjög hamingjusamur með vegna nokkra ástæðanna, aðalega þó einnar). Komið og farið frá AK (sem er ekki nógu gott, hefði viljað vera á AK yfir nóttina). Einn dagur á milli sem verður notaður til æfinga og svo aftur leikur við Dani þann 8.júní í Höllinni eftir því sem ég best veit. Þessar fáu æfingar og leikir verða nýttir vel til að slípa okkur saman fyrir Svía leikina sem að eru endalaust mikilvægir og verðum við einfaldlega að vinna þá svo við komumst á HM í Þýskalandi sem verður rosaleg keppni, klárlega flottasta handboltakeppni sem haldin hefur verið og mun verða haldin í nánustu framtíð enda umgjörðin í kringum handboltann þar rosaleg. Þannig að það verður allt lagt í það að komast þangað. Þann 9. júní verður svo haldið til Svíþjóðar og æft meira. Leikurinn er svo þann 11. júní og verðum við að ná þar góðum úrslitum svo við getum nýtt okkur það að eiga heimaleikinn í seinni viðureigninni sem verður leikinn þann 17. júní, á sjálfan þjóðhátíðardaginn. Þar má búast við fullri Höllinni, svaðalegri stemmningu og massífum leik. Ekki verður heldur leiðinlegt að slá Svíanna út á þjóðhátíðardaginn.

                Þetta er svona nokkurn veginn það sem mun drífa á daga mína næstu vikur. En að lokum þá ætla ég að biðja tímann að fara að taka aðeins við sér því ég er ekki nógu klár í því að bíða eftir ákveðnu mómenti.


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.05.2006 14:30:02 / Hreidar2

Maður spyr sig!!!

Ætla að smygla nokkrum pælingum sem eru að brenna inn í hausnum mínum . Misgáfulegar pælingar, en er þó búinn að spá aðeins í hverri og einni í smá tíma.

 

  • Hvor væri ánægðari; Svertingi sem vaknar sem hvítur eða hvítingi sem vaknar sem svartur?
  • Í einu af ógeðis lögonum sem var sungið í Euro(trash)vision var um af hverju englarnir séu grátandi; Hver segir að þeir séu að gráta?
  • Hvernig fúnkerar himnaríki? Eru sjónvarpstöðvar, allmennt entertainment, er hægt að búa til börn í himnaríki (you know what I mean), er ofurgrúppa þarna uppi sem samanstendur af þeim tónlistameisturum sem látnir eru (Lennon, Buckley, Hendrix, Harrison, Bonham, Presley, Joplin, Cash ofl.)? Gæti verið svakalegt. Eða er það eins og í bíómyndunum, eitthvað risastórt engi með einu geðveikt flottu tré með eplum. Ef svo er þá hlýtur það að vera leiðigjarnt að hlaupa frjáls um eitthvað engi endalaust? Eða dettur maður bara í Nirvana? Endalausar spurningar sem vakna við þessa pælingu, gæti haldið áfram endalaust.
  • Er Dan Scott mesti hálfviti allra tíma sem birst hefur á sjónvarpskjánum (Akkúrat ekkert gott við þennan gutta)?
  • Voru konur skapaðar á eftir karlinum; svo Guð gæti bætt upp fyrir gallana á fyrri útgáfunni (Maður spyr sig)?
  • Eru fyrirfram ákveðnir staðlar í þjóðfélaginu sem ákvarða að mestu hvernig við högum lífi okkar? Höfum við í raun eitthvað að segja hvernig framvindu líf okkar tekur?
  • Einhverjir vísinda gúrúar héldu fram að það væri líkamslykt sem ákvarðaði það hvort við féllum fyrir annarri manneskju. Humm, er semsagt betri lykt af myndarlegu fólki heldur en hinu sem óheppnari eru? Maður spyr sig. Gæti maður semsagt fallið fyrir einhverri/einhverjum alsberum/berri manneskju frá Afríku með matardisk í neðri vörinni af því að hún/hann hefði svo massífa líkamslykt að maður mundi kikna í hnjáliðunum? Maður spyr sig.
  • Leiðir ofbeldi af sér meira ofbeldi eða getur ofbeldi leitt til friðar?
  • Margir útiloka að geimverur séu til en  trúa á Guð; er það ekki nett hræsni. Maður spyr sig
  • Hver er mamma strumpanna, er æðsti strumpur pabbinn?

 

Margar pælingar sem brenna í haus og er þetta aðeins brot af því sem ég er að pæla í, svona í tíma og ótíma. Shiiiiiiiit.

 

HLG   

 

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.05.2006 01:30:35 / Hreidar2

The next chapter/The beautiful dark hair retro cool villain kung fu all star babie$$$

               Then they had to decide a date for their big kung fu battle, the retro cool villain suggested that they should kung fu one week from now, she accepted. She had agreed that if the retro cool villain would win the kung fu battle she would give him her heart. The retro cool villain was a little frightened because he wasn´t very keen on going blind but he really really wanted to get the beautiful dark hair kung fu all star girl to be his woman. So he went home and started to train his kung fu skills for the fight. He fronted his three best ninja friends to help him have something special for his big kung fu fight. The three ninjas agreed on helping him and started immediately by giving him a little of their strengths. One gave him the strength of the earth other gave him the strength of the air and the third the strength of his well toned thighs. The retro cool villain felt that he was invincible but the three ninjas were just getting started with him and the rest of the week he went thru a hell of a mental and trix combo training. His best combos was water air elbow mixed with sky leaf thigh, upper wind skitzo heel combed with salmon snake hip and finally but not the least the CAPOWIE that he used when some oddly strange baritone voice yelled out FINISH HIM.

               

               The CAPOWIE was a three way combo, first he would jump up in the air call out the strength of the wind then put his right foot in kung fu position, then he let one tear go through his left eye and down the right cheek (It was a tricky thing to do), and finally breath the spirit of Gazu (The Kung fu spirit) through every single cell in his body. His body would swell up and his clothes explode off him and one of his enormous testicles would shoot out of the sack and into the opponent’s hip and break it into pieces. Then he would be declared a winner.

             

               After five days he tried his skills in three friendly kung fu battles. First there was the Michigan ninja champion, the retro cool villain slaughtered him in less then one hour, then there was the Illinoisan Kung Fu ninja champion and it was a little bit more difficult battle for the retro cool villain but he slaughtered him in less then a one and half an hour. The final friendly Kung Fu battle was against the kung fu ninja ninja champion of California, which was the toughest battle of them all but it was less then a quarter past one and half an hour until the retro cool villain had slaughtered him. (Now the readers could ask them self that something isn´t quite right because the retro cool villain should only have two testicles like other men at least most other men do, and it´s right my friend the retro cool villain had “only” two of them like all (most) the others. But the answer is quite simple; he had just saved the CAPOWIE for the ultimate challenge against the beautiful dark hair kung fu all star girl. He needed the other one to make beautiful dark hair retro cool villain kung fu all star babies with her). After these friendly kung fu battles he was very confident that he could win the kung fu battle against the beautiful dark hair kung fu all star girl, so sure that he went to a jewelers store and bought the biggest, shiniest most expensive diamond ring that was available in the whole wide world, but he didn´t have to buy it with money, the jewelry clerk wanted something that money couldn´t buy. The jewelry clerk wanted a little retro coolness in his blood and there was no one better for that job then the retro cool villain. So the retro cool villain offered him his famous Skitzo dance (Justice remix) instead for the amazing diamond ring, the jewelry clerk accepted. The retro cool villain took his position and began talking with his deep baritone voice “It´s just before midnight and a long line of clubbers wait patiently outside” then a soft tone of rhythm begins and the retro cool villain shout his lungs out (this time with a retro cool high voice) “zaike up the tunes” and a retro cool computer disco song start and the retro cool villain began his Skitzo dance and what a Skitzo dance it was, the jewelry clerk gasped by the retro coolness that the villain had in his blood. After the amazing retro coolness the jewelry clerk gave him the biggest, shiniest most expensive diamond ring in the whole wide world. Out went a happy, confident retro cool villain but first he gave the jewelry clerk one retro cool advise in tips; he said “Never be alone, you never have to be alone again because we are your friends” and shoved him a picture of him self (the retro cool villain) and the three ninjas.

        

               The day had come, this was the day for the ultimate kung fu battle, he felt so ready so confident but a little dilemma because he would have to hurt his lovely beautiful dark hair kung fu all star girl. But he also was very scared of loosing and loose his vision and therefore his title would no longer be the retro cool villain instead he would only be retro. By loosing cool villain out of his name, he could as good be dead. He had promised him self that if he lost he would kill him self with a spoon. He knew that it can be very hurtful killing him self with a spoon. But worst of all someone else could win the beautiful dark hair kung fu all star girl heart, which was not an option.

             

              Then the retro cool villain went to the battle field in the Laugavegur of Oklahoma and there she was, his jaw dropped down to the ground, she was so unbelievable stunning that he cried out “sjæsus”. Then they took their kung fu position with only 10 retro cool meters away from each other. The judge of this kung fu battle spoke in the middle and informed the rules, the old white beard lady judge told with a yamakazi voice “The rules are that there are no rules” and dropped the yamakazi sword so that the kung fu battle could begin. The retro cool villain began running faster then the sound at the beautiful dark hair kung fu all star girl and cried out “disco-disco-need to disco”, she jumped up in an air kung fu position and jelled out with a crystal pure voice “Pop the glo-glo, pop the glo-glo, pop the glock” and then………………………  

 

 

 

 

 

 

                                                        HLG          


» 10 hafa sagt sína skoðun

12.05.2006 01:25:27 / Hreidar2

The retro cool villain

         Long long time ago there was this retro cool villain who liked to run the fields of Oklahoma. His name was Fredrik, he was not very happy with his name because all the other retro cool villains made fun of him for that awful awful none retro cool villain name, so he decided to go to Tulsa (the capital of Oklahoma) and get him self the most beautiful retro looking beauty queen in Oklahoma. So he went and swept some beauty queens feet off the ground with his retro cool charm but none of them were beautiful enough to make up for his non retro cool villain name, so he kept on going until there were this gorgeous dark hair retro lady with this amazing kung-fu skills that blows everybody away and made them blind if they looked at her doing her retro kung-fu thing. He said to him self that she´s the one for me and will make up for my non-retro cool villain name, “everybody will respect me”. He went to her and tried to sweep her feet off the ground with his retro charm and white teeth but it failed, he thought “sjæsus” because his combo with retro charm and white teeth had never failed him before, usually he didn´t even have to show off his white teeth. What was there to do, should he talk to her, should he show her his bicep or break the world record in Long Jump? He decided to do none of these things; instead he went to her and challenged her in a kung-fu battle with his retro mind. She accepted.

 

 



 

 



Jæja, nenni ekki að skrifa meira af þessu bulli. Er að fara að koma mér fyrir og sjúga í mig menningu.

 

 



Menningunni seinkaði um klukkutíma vegna tæknibilunar á skjá 1-num

 

 



HLG  


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.04.2006 22:54:01 / Hreidar2

Nú er tíminn til að líta til himins!!!!

Það eru margir sem velta sér endalaust upp úr stjörnumerkjum og stjörnuspám. Þessi spá gæti hjálpað þeim sem eru ekki búnir að fá nóg af upplýsingum varðandi þessi merki.




Hrútur (20. mars - 20. apríl):
Þú ert óþolinmóður og fljótfær egóisti,
góður að lofa öllu fögru, en fljótur að gefast upp og láta aðra þrífa upp
skítinn. Þú ert keppnismaður og sérlega klár í að keppa við ranga aðila og
slá tilgangslaus högg útí loftið. Þú ert kvikindi, en það hjálpar hversu
einlægur, barnalegur og einfaldur þú ert.


Naut (20. apríl - 21. maí):
Þú ert latur og þrjóskur, enda löngu staðnaður
og fastur í sama farinu. Peningar og þægindi eru það eina sem þú hugsar
um, enda háður nautnum, mat, sykri og skynörvandi efnum. Þú hreyfist ekki
úr stað og selur sannfæringu þína hæstbjóðenda. Þú ert lítið betri en
stífluð rotþró.

Tvíburi (21. maí - 20. júní):
Þú ert eirðarlaus og yfirborðslegur, alltaf
á hlaupum frá einu tilgangslausu verkefni í annað, með hundrað ókláruð
járn í eldinum. Þú ert sí ljúgandi, enda sérfræðingur í að gefa loforð sem
þú getur ekki staðið við. Vissulega ertu vel gefinn, en þú sóar hæfileikum
þínum í blaður og óþarfa.

Krabbi (21. júní - 23. júlí):
Þú þykist vera töff, en ert í raun aumingi
og tilfinningasósa, og getur ekki talað og tjáð þig, nema með því að væla
og kvarta. Þú ert fastur í fortíðinni og munt því fyrr en síðar kafna í
drasli og gömlum minningum. Þegar þú reiðist þá fer allt í einn graut og
upp blossar grimmd og hefnigirni. En svona dags daglega þá ertu fúll,
þunglyndur og sjálfsvorkunnsamur.

Ljón (22. júlí - 23. ágúst):
Þú ert eigingjarn og of upptekinn af eigin
málum til að hafa áhuga á öðrum. Þú veist allt og hlustar ekki eða öskrar
á andmælendur þína. Þú ert svo barnalegur, einlægur og trúgjarn, að það er
augljóst að þú hefur aldrei fullorðnast. Þú ert latur, en þegar þú gerir
eitthvað, þá gengur þú of langt.


Meyja (23. ágúst - 23. september):
Þú ert einn leiðinlegasti maður í
heimi, alltaf að kvarta, gagnrýna og skipta þér af fólki, en segir aldrei
neitt sem gagnast öðrum. Þú ert alltaf á hlaupum, þykist vera duglegur, en
gerir aldrei neitt af viti, ekki frekar en stormur í tebolla. Þú ert
stressuð taugahrúga.

Vog (23. september - 22. október):
Þú þykist vera ljúfur og vingjarnlegur,
en ert í raun falskur og eigingjarn, brosir framan í fólk, en lýgur og
ferð bakvið aðra. Það tekur þig óratíma að taka ákvaðanir, en þegar það
loksins gerist, ertu óhagganlegur, enda of latur til að hugsa málin aftur
og of upptekinn af því að smjaðra fyrir öðrum.

Sporðdreki (23. október - 21. nóvember):
Þú ert frekur og valdasjúkur,
færð einstök mál á heilann (þráhyggja) og ert því einhæfur og
hundleiðinlegur. Þú ert ímyndunarveikur og tortrygginn, móðgast útaf engu
og gerir úlfalda úr mýflugu. Lífið er annað hvort frábært eða ómögulegt.
Þú ert eins og biluð plata, stöðugt að spila sama lagið.

Bogmaður (22. nóvember - 21. desember):
Þú ert týpan sem grautar í öllu,
en kann ekkert, enda alltaf á hlaupum úr einu í annað. Þú átt erfitt með
að þekkja takmörk þín, ert agalaus, flýrð óþægindi og veist ekki hvernig
þú átt að nýta hæfileika þína. Ef þú nærð tökum á einhverju, þá hleypur þú
í verkefni sem þú ræður ekki við.

Steingeit (21. desember - 20. janúar):
Þú ert stífur og vansæll vinnualki,
fastur í tilgangslausum siðum og reglum, alltaf að skipta þér af öðrum og
segja þeim að gera það sem þú getur ekki gert sjálfur. Þú ert snobbaður og
þráir stöðutákn, enda með minnimáttarkennd sem þú heldur að hægt sé að
breiða yfir með titlum og merkjavöru.

Vatnsberi (20. janúar - 19. febrúar):
Þú ert sérvitur og skrýtinn, og
alltaf svo langt á undan samtímanum að enginn skilur þig eða getur notað
hugmyndir þínar. Vissulega ertu svalur, en þú ert svo sjálfstæður,
ópersónulegur og hræddur við raunverulegan innileika, að þú ert í raun
alltaf einn, frosinn í einskis manns landi. Týndur á skýi í háloftunum.


Fiskur (19. febrúar - 20. mars):
Þú ert rugluð og týnd sál og hefur ekki
hugmynd um hvernig þú átt að nýta hæfileika þína eða í hvaða átt þú átt að
fara. Þú vilt vera alls staðar og upplifa allt. En þar sem þetta er
ómögulegt, þá fer allt í vitleysu. En það gerir ekkert til, þú ert
sérfræðingur í sjálfsblekkingum og því að flýja raunveruleikann

Stal þessu af síðunni hans Kidda, þar sem mér fannst þetta frekar fyndið. Svo verða bara konur og menn að meta það með sjálfu sér hvort eitthvað sé til í þessu eða þá að þetta sé einfaldlega bara tóm tjara.

Ég er allavega í bogamanninum og tja eh uhm tja eh.

HLG


» 10 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 03:11:17 / Hreidar2

Skrítið háttarlag svíns um nótt.

Til að breyta út af vananum sofnaði ég í sófanum heima í kvöld. Þegar ég vaknaði síðan áðan dreymdi mig skrítnasta draum í heiminum. Draumurinn var á þessa leið:

Ég var sofandi í sófanum heima og vaknaði við það að ég datt úr sófanum og niður á gólfið. Þá fann ég að eitthvað var að labba við mig og rekast í mig. Steig næstum því á hálsinn á mér, strauk hann. Ég færði mig aðeins frá því og þóttist vera sofandi. Gerði mig máttlausann þangað til að það var farið frá mér.

Þegar það var farið frá mér lagðist ég upp í sófann aftur og lét Stebbi sem sat í hinum sófanum vita að það væri svart svín í íbúðinni. Hann tók því frekar rólega og sagði "já ég veit það" og byrjaði að klappa því og klóra á hnakkanum. Síðan sagði hann "þetta er ótrúlega þægt svín" þá sagði ég við hann að við þyrftum að ná því út úr íbúðinni og hann var sammála því. Þá tók hann og henti einhverju á gólfið og ég sá að svínið byrjaði að borða það. Þá spurði ég hann hvort að þetta væri besta lausnin sem hann vissi um, að gefa því að éta. Þá svaraði hann mér að þetta væri bara bananahýði.

Eftir það fór ég að reyna að finna einhverja lausn til að losna við svínið en Stebbi var salí rólegur yfir þessu öllu saman. Á meðan ég var að reyna að finna einhverja lausn var ég alltaf alveg við það að sofna.

Þegar ég vaknaði aftur í draumnum þá lá svarta svínið á maganum og Stebbi sagði að það væri að hvíla sig og það lægi ekkert á að losna við það.

Þá vaknaði ég alveg frá draumnum. Ég lá í sama sófa og mig dreymdi og Stebbi var í hinum sófanum og mér fannst eins og svínið væri þarna einhversstaðar og fór að skima eftir því. Spurði Stebba hvort að ég hefði eitthvað verið að tala við hann. Hann spurði á móti hvort að ég væri eitthvað geðveikur. 

Eftir að Guðinn hafði grúskað aðeins á netinu komst hann að því að svartur litur á dýrum gæti þýtt dauða. Var því ákveðið að keypt yrði draumráðning á femin.is til að komast að hvað í ósköpunum þetta þýddi. Hún kostaði 2000 kall.

En svo í allt annað. Fór á V-for vendetta um daginn. Gott stuff. 

H.L.G.


» 7 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 15:06:58 / Hreidar2

Guð-inn Mun ROKKA (applause)

Jibbý jei-jíbbý jibbý jei-jibbý jibbý jibbý jey (Eins og Rokklingarnir sungu hér um árið), Þetta er þá komið 50 gildar kvittanir eru komnar og þar með munum við fá Guð-inn til að rokka. Það verður upplifun sem á eftir að lifa með manni það sem eftir er. Þá er bara að finna lagið sem hann á að flytja og veit ég að hann hefur úr ógrynni af lögum til að velja úr sem munu rokka inn í hjörtu dómnefndar og í gegnum iljar og alla leið upp í haus á þeim sem munu sjá hann gefa djöflinum sál sína í flutningnum. Ég efast ekki um það að ég og allir þeir sem kvittuðu eru að gefa Guð-inum tækifæri til að finna hinn raunvörulega tilgang lífs síns. Þannig að eftir ekki svo langan tíma verður Guð-inn að öllum líkindum orðin rokk gúrú með ótakmarkað cash á milli tánna, líkaminn uppfullur að töff tattúum, eldheitar grúppír sem hann mun geta valið og hafnað eftir vilja sínum einum, nýja vini sem hann getur stjórnað eftir sínum vilja og við hin sem vorum vinir hans verða ignore-aðir því við verðum orðin way below his standard. Svona verður þetta væntanlega því ekki get ég allavega séð fram á það að nokkur geti keppt við þann kraft, þá sál, þá hrjúfu en jafnframt mjúku rödd, og þokka þess manns sem kallar sig Guð-inn. Við hin getum hins vegar glaðst með honum, meðan hann lifir hinu æðislega bohem lífi en við hin ströglumst í gegnum hina gráu tilveru því við hrundum þessu ferli í gang sem gerði hann að þeirri ofurstjörnu sem hann mun brátt verða og þekktum einnig gaurinn þegar hann var bara plain old fashion Stebbi Gé. Ég hvet fólk samt áfram til að kvitta á færsluna fyrir neðan sem eiga það eftir og hafa trú á Guð-inum því þá getið þið sagt að þið eigið hlut í þeirri ofurstjörnu sem er að fæðast, það eina sem vantaði upp á var aðeins örlítið push........

 

Guð-inn er strax orðin frekar cocky með sig, hann biður núna nefnilega um að það verði komin 100 kvittanir á commentið og þá ætlar Guð-inn að skella sér á sína fyrstu tattúveringu fyrir þann stórviðburð sem 5.apríl mun verða, Þannig að keep on going

 

Súperstjarna í fæðingu

 

HLG



 



 



 


» 18 hafa sagt sína skoðun

22.03.2006 01:21:07 / Hreidar2

Fáum Guð-inn til að Rokka

         Þar sem Stebbi Guð svindlaði í sinni áskorun, þá er ég komin með nýja og sennilega mun betri áskorun á hann, svo hann geti bætt fyrir svindlið og er einnig algjörlega á heimavelli í þessari keppni sem ég var að enda með að skrá hann í Rock Star (Supernova, hef ekki hugmynd hvaða hljómsveit þetta er, skiptir svo sem ekki máli)

         Ég ætla að byrja á því að segja hvernig þetta svindl fór fram með Idol áskorun hans og geta menn og konur þá metið það með sjálfum sér hvort þeim finnist þetta vera staðin áskorun eða ógild eins og ég vil meina. Það var sem sagt skorað á Stebba að taka þátt í forkeppni Idol-sins, þar sem hann valdi að syngja (ýlfra) Traustur vinur. Ég tók það að mér að fylgja honum eftir og taka allt ferlið upp. Strax byrjaði svindlið, hann var tekinn í viðtal af Ívari Guðmunds og það meira að segja í beinni útsendingu. Það eina sem stundi upp úr Stefáni og það aftur og aftur að þetta væri bara áskorun sem hann hefði verið píndur í. Það sást strax á útvarps/fitnes guttanum að þetta var ekki beint það sem hann og keppnin væri að leita af....... En jæja, ferlið gekk áfram þar sem við biðum endalaust og í þessari bið tilkynti Guð-inn öllum sem vildu heyra að þetta væri bara áskorun......... Svo biðum við aðeins meira og svo til að gera ferlið aðeins hressara þá biðum við ennþá meira....... Svo loksins fór að koma að Guð-inum og hann kallaður inn í rauða herbergið og stressið og spenningurinn (var klárlega enginn spenningur í gaurnum, bara stress)...... Hann fer inn og ýlfrar þetta lag (sem hann var reyndar búinn að æfa nokkuð vel og ég þurfti að vera svo óheppinn að hlusta á megnið af þessu gauli) fyrir þau Bubba, Siggu, Pál og undirhöku gaurinn þarna sem enginn veit hvað heitir og kemur reyndar gjörsamlega náfölur út sem var einstaklega skemmtilegt og fyndið og er tekinn í viðtal af þeim næstum því aldrei fyndnu Jóa og Simma, þar sem hann ælir því enn og aftur að þetta hafi bara verið áskorun sem hann var nauðugur sendur út í, svo til að toppa þetta byrja hann að benda á saklausan mig og segja að ég sé næstur.......

         Hversu miklar líkur eru á því að þetta færi í sjónvarpið (sem og það gerði ekki), og það sem mestu máli skiptir er hvort þetta sé staðin áskorun þegar maður gasprar í alla og meira að segja í viðtölum að þetta sé bara áskorun sem hann hafi verið píndur í. Það er eins og þegar við sendum Rögga í stjórnun og hann byrjaði að segja öllum áður en hann færi að steikja í fólki að hann væri bara í áskorun/stjórnum, það væri ekki fyndið, ekki skemmtilegt og fyrst og fremst hefði hann ekki staðist áskorunina.........

         Þannig að nú er loksins komið tækifæri fyrir Guð-inn að losna úr þessari skömm sem hann lifir í að hafa ekki staðist Idol-áskorunina og svindlað sig í gegnum hana....... Eins og ég nefndi áðan þá er Rock Star (INXS) að leita að nýjum rokk hundi til að vera rokk stjarna í þessari Supernova hljómsveit og tel ég Guð-inn tilvalinn í verkið og mun meira á heimavelli þar, þar sem hann var klárlega á útivelli í Idol-inu........ Guð-inn hefur gríðar margt til bruns að bera til þess að gera það gott í þessari áheyrnarprufu sem haldin verður á Gauk á Stöng þann 5.apríl....... Við erum að spjalla um það að hann hefur þegar magnað sviðsnafn, klárlega hefur hann lookið í þetta, hann kann að flippa og röddin er mun betur gerð fyrir rokk söng heldur en í dull útjaskaðan íslenskan slagara........ Þeir sem ekki hafa heyrt Guð-inn tekið slagara með Primal Scream, Rolling Stones, Muse og svo þegar hann gefur allt af sér með slögurum frá At The Drive In hafa misst af svo svo miklu......

         Hann hefur sem sagt fallist á það að skella sér á sviðið þann 5.apríl á Gauknum ef ég næ að fá 50 samþykki á það að hann hafi ekki staðist hans fyrri áskorun og að fólk vilji sjá hann á sviðinu þann 5.apríl, og ég verði að fá þessi samþykki á síðuna mína í commentin..... Ég sagði nú við hann að ég efaðist um að ég gæti náð svona mörgum commentum á síðuna mína (hann sagðist vita það, þess vegna hafi hann sagt þessa tölu). Ég ætla allavega að prófa þetta og sjá hvort það séu fleiri en bara ég sem vilji sjá Guð-inn á Rock Star sviðinu þann 5.apríl og hvet ég því alla til þess að senda inn sína skoðun á þessa síðu í comment dæmið og fáum Guð-inn til þessa rokka úr sér hjartað fyrir ekki bara Ísland heldur allann heiminn..

Undirskriftarsöfnun er því hér með hafin og krossa ég fingur að svo ólíklega vilji til að ég nái þessari tölu..... Þarf 50 manns og ég má ekki hvetja fólk til að skrifa á síðuna mína, svo þið fáu sem tékkið á þessu verðið að láta þetta berast.

Svo í allt annað, ég fór að sjá The Matador í bíó.

Fáum Guð-inn til að Rokka.

HLG


» 83 hafa sagt sína skoðun

21.03.2006 01:43:52 / Hreidar2

Lygi/Ég hrekktur

Jæja, helgin nýliðin. Skellt sér út fös og lau, allt gott um það að segja. Var pollrólegur bæði kvöldin, fékk mér vissulega nokkra kalda þú átt skilið að fá þér Thule bjóra. Allt í góðu með það, og það sem mikilvægast er að ég eyðilagði ekki neitt (bilaði ekkert), kom vel fram við hvern einasta mann og ekki einn fulla gæja skandal. Komst sem sagt gjörsamlega skammlaust frá þessari helgi eins og alltaf.........

Annars var ég símahrekktur í þetta skiptið af liðsfélögum mínum, þannig er nefnilega mál með vexti að The only gay in the village hefur verið að senda mér ansi skrítin og vafasöm sms undafarna viku eða svo. Ég semsagt gerði þau hrikalegu rookie mistök að skilja síman minn á klámbekk í partýinu og félagarnir notfærðu sér það skiljanlega og sendu sms á The only gay in the village (sms: Hvort villtu vera Top eða Bottom ;)) (shhhiiiiiiit fyrir mig). Eftir þetta rigndi yfir mig sms-um, þar sem meðal annars kom fram að ég væri foli (shhhhhiiiiit), hann væri hrifinn af mér (shhhhiiiiiit) og svarið við spurningunni frá félögum mínum; Hvað sem þér dettast í hug (shhhhhiiiiiiit), mikið hlegið “með” mér í partýinu þar sem ég upplýsti alltaf jafnóðum hvað væri í gangi. Svo hélt þetta áfram á sunnudeginum, fór ég þá að vera frekar þreyttur á þessu og kom honum í skilning að ég væri ekki fyrir svona og það hefðu verið félagar mínir sem voru að gera grikk í mér og vildi vinsamlegast að hann hætti að senda mér sms. Hann brást ekkert sérstaklega vel við þessum fréttum og fékk ég frekar harðort sms til baka. Alltaf sama lognmollan í kringum mig, (shhhhiiiiiiit)

HLG


» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2